Skotpróf fyrir hreindýraveiðar

Skotfélag Austurlands - SKAUST framkvæmir skotpróf fyrir þá sem fara til hreindýraveiða.

Dómarar eru að miða við að prófa á mánudögum og miðvikudögum frá 17:00 og svo eftir samkomulagi.

Best er að hafa samband við prófdómara eftir kl 17:00 í símum:

  • Haraldur Gústafsson, 857-6689
  • Baldur R. Jóhannsson, 662-4654
  • Sveinbjörn Valur Jóhannsson, 866-4048
  • Kristján H. Jónsson, 843-7944 
  • Ísleifur Guðmundsson, 849-1314
  • Hjörtur Magnason, 855-4850
  • Sigurgeir Hrafnkelsson, 892-2022

Prófdómarar verða svo í sambandi og finna tíma sem hentar báðum aðillum.

Hægt er að greiða á staðnum með korti.

En einnig má millifæra prófgjaldið Kr. 4500 - á reikning SKAUST með skýringunni Skotpróf 2017 skotprófi skal þá framvísa kvittun. Það skal tekið fram að greiða skal fyrir skotprófið áður en það er tekið. Vinsamlegast framvísið lánsheimild skotvopns eigi það við.

Kt. 500395-2739
Rkn. 0305-26-000243

Nauðsynlegt er að æfa sig fyrir skotprófið og gott er að kynna sér framkvæmd prófsins. Svo er bara um að gera að taka lífinu með ró og gera sitt besta. Það er gott að prenta út Skjal með æfingaskífunni (PDF 104 KB) og prófa að skjóta á hana á 100 metrum.