Umgengis og öryggsreglur skotsvæðisins

Almennt:

  1. Aðgangur að skotaðstöðu svæðisins er lokaður öllum öðrum en virkum félagsmönnum SKAUST utan auglýsts opnunartíma.
  2. Virkir félagsmenn teljast þeir sem hafa greitt ársgjald félagsins og hafa þeir aðgang að aðstöðu svæðisins.
  3. Iðkenndur skulu ávallt vera árvökulir gagnvart umhverfinu utan æfingasvæðisins og sýna tillitsemi gagnvart þeim sem eiga ferð þar um.
  4. Aðeins er heimil notkun skráðra skotvopna á skotsvæðinu og skal handhafi vopnsins geta sýnt fram á skotvopnaleyfi sé þess óskað.
  5. Einungis er leyft að nota stálhögl á haglabyssuvelli.
  6. Bannað er að láta hunda ganga lausa á svæðinu.

Riffilvöllur:

  1. Ávallt skal umgangast vopn sem þau séu hlaðin
  2. Vopn skulu ávallt vera í tösku þar til komið er inn í skothús og æfingar hefjast.
  3. Ekki skal hlaða vopnið fyrr en búið er að beina því í skotstefnu vallarins og ganga úr skugga um það að enginn sé á brautinni.
  4. Áður en farið er að skotmarki skal ganga úr skugga um það að allir séu hættir að skjóta og vopnin standi opin og óhlaðin á borðunum.
  5. Aðrar umgengnisreglur vallarins svo sem umhirða og frágangur skulu ákveðnar af riffilnefnd og skulu hanga uppi í skothúsi.
  6. Brot á umgengnis- og öryggisreglum geta varðað brottrekstur úr félaginu og kæru til lögreglu.
  7. Stranglega er bannað að skjóta fugla eða önnur dýr á eða í næsta nágrenni vallarins.
  8. Skylt er að nota eyrnahlífar

Haglabyssuvöllur:

  1. Byssur skulu hafðar opnar og óhlaðnar þar til viðkomandi skotmaður hefur tekið sér stöðu á skotpalli.
  2. Byssur eiga að vera án óla.
  3. Ef skotmaður vill munda óhlaðna byssu skal hann haga sér sem um hlaðna byssu sé að ræða og fylgja 1 grein.
  4. Hámark er leyfilegt að 6 skyttur séu á vellinum samtímis.
  5. Skotmenn skulu ganga snyrtilega um svæðið og henda hylkjum og öðru rusli í ruslatunnur eftir hvern hring (25 dúfur) – ekki á meðan verið er að skjóta hringinn.
  6. Stranglega er bannað að skjóta fugla eða önnur dýr á eða í næsta nágrenni vallarins.
  7. Aðeins er heimilt að stunda æfingar á auglýstum æfingartímum eða með samráði við vallarstjóra og aðeins á tilgreindum svæðum. Hafa skal samráð við vaktstjóra áður en æfingar eru hafnar.
  8. Vaktstjóri er einráður á svæðinu á meðan á æfingum stendur.
  9. Félagið bendir öllum á að hver og einn er ábyrgur fyrir sér og sínum vopnum á svæðinu, eins og alls staðar.
  10. Skylt er að nota eyrnahlífar og hlífðargleraugu.
  11. Brot á þessum reglum geta valdið brottrekstri af svæðinu og kæru til lögreglu.