Hreindýrahreysti 2013

Enn eitt mótið er að detta á hjá SKAUST

Hreindýrahreysti verður haldið miðvikudaginn 26 kl 18:00 að skotsvæði SKAUST. Regluverkið er orðið klárt á vefnum okkar. Ef menn hafa fyrirspurnir er rétt að beina þeim á hugmyndasmiðinn Jón Hávarð í síma 867-4390 og Netfang er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Við viljum hvetja menn til að mæta og skemmta sér

 

Bjarni

Prófdómarar

við viljum benda á númer prófdómara vegna skotprófa

Bjössi verður til taks næstkomandi laugardag frá 17 - 20

Skotpróf

Skotfélag Austurlands - SKAUST framkvæmir skotpróf eins og í fyrra. Vinsamlegast sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og bókið tíma einnig er hægt að hringja í prófdómara

Bjarna Haralds                   8437735

Baldur R. Jóhannsson       6624654

Bjössi                                    8664048

Hjörtur Magnason             8580870

Tómaz Stanislawsson        8235560

eftir 17:00.  Prófdómarar verða svo í sambandi og við finnum tíma sem hentar báðum aðillum.

Fyrirkomulag:

Vinsamlegast millifærið prófgjaldið Kr. 4500 - á reikning SKAUST með skýringunni Skotpróf 2013. Í skotprófi skal framvísa kvittun. Það skal tekið fram að greiða skal fyrir skotprófið áður en það er tekið. Vinsamlegast framvísið lánsheimil eigi það við.

Kt. 500395-2739
0305-26-000243

Undirbúningur fyrir prófið.  Nauðsynlegt er að æfa sig fyrir skotprófið og gott er að kynna sér framkvæmd prófsins hér. Svo er bara um að gera að taka lífinu með ró og gera sitt besta. Það er gott að prenta út Skjal með æfingaskífunni (PDF 104 KB) og prófa að skjóta á hana á 100 metrum.

Bjössi verður á svæðinu frá klukkan 10:00 og fram eftir degi sunnudaginn 16 júní. Sími hjá Bjössa er 8664048

Næsta skotmót

Nú er komið að næsta móti og eru menn hvattir til að skrá sig hér á vefnum.

[rsvpmaker_upcoming add_to_query="p=1211"]

Laugardaginn nk. 8. júní fer fram veiðirifflamót á svæði SKAUST. Mæting kl 9:30 fyrir veiðirifflaflokk og kl. 12:30 breyttir veiðirifflar. Mótsgjald 1500 kr.

Skotið á Hunter Class spjöld á 100 og 200 metra færum. 5 skotum á 5 blöð, samtals 25 skot á færi, 50 skotum á báðum færum. Auk þess má skjóta ótakmarkað á "sigter" hring á hverri skífu sem er í neðra horninu hægra megin merkt S. Tímamörk eru 10 mínútur á fyrstu skífu og svo 7 mínútur á hinar fjórar. Nota má tvífót og skorður (Rest). Engar takmarkanir á sjónaukastækkun.

Flokkar:

1. Óbreyttir veiðirifflar, upprunalegur lás og hlaup. Mega vera beddaðir.
2. Breyttir veiðirifflar/custom veiðirifflar eins og t.d Sako TRG eða Remington XB 40. Einnig ef búið er að skifta um hlaup á veiðiriffli.

Skráning á vefnum, notið formið hér að ofan eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og upplýsingar í síma 8617040

Fh. riffilnefndar SKAUST, Hjalti Stef