Haglabyssudeild
Bólholt, Smyril line og Veiðiflugan hafa veitt SKAUST styrk til kaupa á leirdúfukösturum svo hægt sé að setja upp sporting völl. Þá eru komnir fjórir kastarar á völlinn.
Leirdúfuvöllurinn verður opinn alla mánudaga og fimmtudaga frá maí til ágúst á milli 18:00 og 21:00.
Boðið verður upp á afrifukort fyrir leirdúfuskotfimi á staðnum.
Verðskrá fyrir meðlimi SKAUST
- 1 hringur - kr. 800-
- 10 hringir - kr. 7.000-
Verðskrá fyrir aðra en meðlimi
- 1 hringur - kr. 1.000-
Hver hringur er 25 dúfur.
Á svæðinu eru seld skot á sama verði til félags og utanfélagsmanna.
- 1 pakki, 24gr skot - kr. 1.000-
- 1 pakki, 28gr skot - kr. 1.100-
SKAUST hvetur fólk til að nota heyrnahlífar á skotsvæðinu og kynna sér öryggisreglur.